ADVFN Logo ADVFN

We could not find any results for:
Make sure your spelling is correct or try broadening your search.

Trending Now

Toplists

It looks like you aren't logged in.
Click the button below to log in and view your recent history.

Hot Features

Registration Strip Icon for default Register for Free to get streaming real-time quotes, interactive charts, live options flow, and more.

49IP Landsbanki.6.25

0.00
0.00 (0.00%)
Name Symbol Market Type
Landsbanki.6.25 LSE:49IP London Medium Term Loan
  Price Change % Change Price Bid Price Offer Price High Price Low Price Open Price Traded Last Trade
  0.00 0.00% 0 -

Landsbankinn kynnir fyrsta ársfjórðungsuppgjör 2008 þann 7. maí í London

07/05/2008 9:45am

UK Regulatory


    Landsbankinn kynnir fyrsta ársfjórðungsuppgjör 2008 þann 7. maí í
London
             



Landsbankinn mun halda afkomukynningu vegna fyrsta ársfjórðungs 2008
í dag kl. 8 að íslenskum tíma.
 
Kynningarfundur í London 7. maí
Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson bankastjórar
Landsbankans, munu  kynna afkomu  bankans og svara fyrirspurnum. Hægt
verður að fylgjast með útsendingu af kynningunni á vef Landsbankans
www.landsbanki.com/ir en öll fundargögn verða birt þar á sama tíma.
Meðfylgjandi er afkomukynningin og árshlutareikningurinn sem excel.
 
Tími: 8:00 ( 9.00 UK og 10.00 CET)
Staðsetning: Beaufort House 15 St Botolph Street, London EC3A 7QR
Skráning: Vegna strangra öryggisstaðla er nauðsynlegt að gestir skrái
sig á http://www.landsbanki.is/english/registration/q12008results
 
Útsending og símafundur
Þeir sem vilja fylgjast með fundinum í London geta séð kynninguna í
rauntíma á www.landsbanki.com/ir. Einnig verður hægt að hlusta á
fundinn símleiðis með því að hringja 10 mínútum fyrir fund í síma 
+44 (0) 1452 569 103.
 
Fundargögn og upptaka
Hægt verður að nálgast fundargögn ásamt hljóð- og myndupptöku af
kynningunni á www.landsbanki.com/ir að fundi loknum.
 
 
Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Landsbanka Íslands hf. fyrir
fyrsta ársfjórðung 2008:
 
*           Hagnaður fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2008 nam 19,7
  milljörðum króna (EUR 193m). Hagnaður eftir skatta var 17,4
  milljarðar króna (EUR 171m). 
*           Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 44%.
   Eiginfjárhlutfall (CAD) var 11,0% í lok mars 2008.
*           Grunntekjur samstæðunnar (vaxtamunur og þjónustutekjur)
  námu 26,2 milljörðum króna (EUR 257m)  og hafa aukist um 27% miðað
  við fyrsta ársfjórðung 2007.
*           Grunntekjur af erlendri starfsemi námu 15,1milljarði (EUR
  148m) króna á fyrsta ársfjórðungi 2008 eða 58% af grunntekjum
  samstæðunnar.
*           Gengismunur og fjárfestingatekjur námu 14,7 milljörðum
  króna (EUR 144m) samanborið við 8,8 milljarða króna á fyrsta
  ársfjórðungi 2007.
*           Heildareignir bankans námu 3.836 milljörðum króna (EUR
  32,1bn) króna í lok mars 2008 í samanburði við 3.058 milljarða
  króna (EUR 33,4bn) í upphafi ársins.  Heildareignir í EUR hafa
  lækkað samkvæmt þessu um 4% á ársfjórðungnum. 
*           Lausafjárstaða bankans er sterk en hún var um 8,2
  milljarðar evra í lok mars 2008.
 
 
Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri:
 
"Afkoma Landsbankans á  fyrsta ársfjórðungi  2008 er  mjög góð,  ekki
síst  í  ljósi  erfiðra  aðstæðna  á  alþjóðlegum  fjármálamörkuðum. 
Grunntekjur  samstæðunar  hafa  aukist   um  27%  miðað  við   fyrsta
ársfjórðung  2007  og   arðsemi  eigin   fjár  var   tæplega  44%   á
ársfjórðungnum. Bankinn nýtur nú góðs af þeim aðgerðum sem hann hefur
gripið  til  á   árunum  2006  og   2007  við  endurskipulagningu   á
fjármögnunargrunni sínum. Útlánasafn Landsbankans  er traust og  eins
og   áður   hefur   komið   fram   er   bankinn   ekki   með   neinar
áhættuskuldbindingar sem  tengjast skuldabréfavafningum,  s.s.  CDOs,
SIVs osfrv. Þá hefur CAD hlutfall bankans haldist áfram sterkt og  er
nú 11%. Þessir þættir styrkja Landsbankann við þær sérstöku  aðstæður
sem nú eru til staðar á alþjóðlegum mörkuðum."
 
 
Halldór J. Kristjánsson bankastjóri:
 
"Sterk fjárhagsstaða og lágar endurgreiðslur langtímalána á þessu ári
gera  Landsbankanum  fært  að standa  af  sér óhagstæðar  aðstæður  á
fjármálamörkuðum  nú.   Á   meðan  mun   Landsbankinn   aðlaga   vöxt
efnahagsreiknings að  aðstæðum  og  leggja áherslu  á  samþjöppun  og
samþættingu  í  rekstri   til  að  auka   hagræði  og  nýta   möguleg
samlegðaráhrif.  Bankinn  mun  halda  áfram  að  auka  fjölbreytni  í
fjármögnun sinni. Icesave innlánsreikningar  í Bretlandi njóta  áfram
velgengni með fjölbreyttara  vöruframboði og met  var slegið í  opnun
nýrra reikninga á fyrsta ársfjórðungi 2008.  Meira en 40% af innlánum
í    Icesave     eru     nú     bundnir     innlánsreikningar     eða
ISA-skattasparnaðarreikningar. Nýjar innlánsleiðir, sem kynntar verða
á völdum  mörkuðum annars  staðar í  Evrópu á  komandi mánuðum,  munu
styrkja enn hlutfall innlána á móti útlánum til viðskiptavina sem var
66% í lok fjórðungsins.  Það sem af er  þessu ári hefur  Landsbankinn
gefið út  skuldabréf  sem  jafngilda 1,4  milljarði  evra  í  lokuðum
útboðum á lægri kjörum en skuldatryggingarálög bankans til fimm ára á
sama tíma."
 
 
Nánari upplýsingar gefur fjárfestatengill Landsbankans, Tinna Molphy,
í gegnum tölvupóst, ir@landsbanki.is, eða síma 410-7200 / 861-1440.




http://hugin.info/136348/R/1216844/254438.pdf

http://hugin.info/136348/R/1216844/254439.xls


1 Year Landsbanki.6.25 Chart

1 Year Landsbanki.6.25 Chart

1 Month Landsbanki.6.25 Chart

1 Month Landsbanki.6.25 Chart

Your Recent History

Delayed Upgrade Clock